23.5.2008 | 01:03
Nýr maður á gömlum grunni
En rétt áður en é fór til læknisins ,,datt ég um" birgðir af fóðurbæti frá GNLD sem ég hef verið að selja undan farin ár, hef trassað að nota hann sjálfur.
Greip þar dollur sem heita Wheat germ oil (E vítamín), Betaguard, Flavonoid comlex og Formúla IV, þetta er nú bara hluti af fóðurbætinum frá GNLD. Þetta er ég búinn að taka inn samviskusamlega í nokkra daga og er orðin allt annar.
En af læknisheimsókninni er það að frétta að hann sagði að slappleikinn geti ekki stafað af nikótín skorti, það myndi í mesta lagi valda pirringi nikótín skorturinn. En læknirinn vildi setja mig í allsherjar rannsókn. Ég fór í hjartalínurit, og blóð- og þvagprufa voru tekin. Allt var skoðað og niðurstaða kom í dag.
Læknirinn sagði að allt væri í stakasta lagi, blóðið nægjanlegt, kólesterólið gott, skjaldkirtillinn góður, og lifrin o.fl. í lagi og kallinn barasta í fínu standi.
En ég ætla að halda áfram að bryðja fóðurbætinn, hann gerir mér bara gott, ég er alveg nýr maður á gömlum grunni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.5.2008 | 11:01
Erfiðri viku að ljúka
Jæja þá er enn ein vikan að líða undir lok. Vikan hefur einkennst af svartsýni í efnahagsmálum. Einnig hafa borgarmálin verið áberandi.
Þá sérstaklega ráðning Jakobs Frímanns í starf aðstoðarmanns borgarstjóra. Jakob er réttur maður á réttum stað. Þarna er kominn drífandi maður sem mun láta verkin tala. Svo má deila um réttmæti ráðningarinnar. En þar sem um er að ræða ráðningu til skamms tíma tel ég það ekki ver neitt stór mál að starfið hans hafi ekki verið auglýst. Vonandi tekst Jakobi að blása lífi í miðbæinn á þeim skamma tíma sem honum er ætlað í verkið.
Sjálfur hef ég legið í bælinu mest alla vikuna. Fékk flensu í lok síðustu viku og er ekki orðin góður þótt ég sé byrjaður að vinna. Ég held að ástæðan fyrir því sé neftóbaksbindindi mitt sem ég hóf 19. apríl s.l. En þá hætti ég að ganga með neftóbakshorn upp á vasann.
Ég hætti neftóbaksneyslunni vegna þess að ég var ekki sáttur við það að vera háður nikótíninu, en löngunin er til staðar en ég ætla mér að standast það að byrja ekki aftur að ganga með neftóbakshornið. En ég hef hugsað mér að reyna það hvort ég geti ekki fengið mér í nefið í góðra vinna hópi þegar þannig stendur á.
Nota ekkert tyggjó eða plástur eða neitt slíkt. Þarf reyndar að beita sálfræðinni á sjálfan mig og þá hugsa ég til bókar Valgeirs Skagfjörð sem ég gluggaði í fyrir nokkrum mánuðum. Ég tel það vera góða bók til að aðstoða fólk við að losna við nikótínið.
Takið endilega þátt í skoðanakönnuninni á síðunni vegna málsins.
Dægurmál | Breytt 11.5.2008 kl. 07:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.4.2008 | 10:58
Úr heigul yfir í hetju
Fjölskyldan hefur farið tvær síðustu helgar í hesthúsið. Veturliði og Margrét eru dugleg að sitja hestana, en í vetur er við eignuðumst Skugga voru þau hálf hrædd við hestana. Það er sérstaklega gaman að fylgjast með Veturliða sem var hræddari við hestana heldur en litla systir hans.
Veturliði þorði að stjórna hestinum, það þurfti ekki að teyma hestinn hjá honum, enda var hann á sérstaklega barngóðum hesti honum Vini, 20 vetra klár.
Eftir að við vorum komin úr hesthúsinu var Veturliði mjög ánægður með sjálfan sig og sagði okkur foreldrunum að hann ætlaði sko að skrifa um ævintýri hans í hesthúsinu í dagbókina í skólanum. Er hann var lagstur á koddann sagði hann við mig, ,,pabbi ég er búinn að ákveða hvað ég ætla að láta dagbókina heita um hestaferðina". Nú hvað á hún að heita? spurði ég hann. Hún á að heita ,,úr heigul yfir í hetju" sagði Veturliði hróðugur og sofnaði fljótlega.
Við höfum öll gaman af hestunum og konan gaf mér reiðhjálm í afmælisgjöf, enda best að hafa öryggið í fyrirrúmi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.3.2008 | 06:55
Forræðishyggja Sjálfstæðisflokksins
Við á landsbyggðinni viljum flest öll hafa völlinn en höfum ekki verið spurð að því og fengum ekki að vera með í kosningunum um flugvöllinn á sínum tíma er Reykvíkingar kusu um völlinn.
Nú er þetta farið að hafa áhrif á samkeppni innanlands. En Iceland Express hefur sótt um lóð við Reykjavíkurflugvöll til að koma á samkeppni. Nú skildi maður ætla að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins myndi fagna því að koma á frjálsri samkeppni en forræðishyggja þessa gamla flokks kemur nú en of aftur í ljós og þeir vilja ekki heimila Iceland Express að byggja vegna óvissu um framtíð vallarins í Vatnsmýrinni.
Ég bara spyr, ættu ekki borgarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ef þeir vilja standa undir nafni flokksins um frelsið að leyfa Iceland Express að byggja og koma á samkeppni. Iceland Express er einkafyrirtæki sem tekur þá bara þá áhættu að völlurinn verði fluttur og þeir ganga þá að því.
Vonandi fer fólkið í landinu að sjá hvernig Sjálfstæðisflokkurinn er flokkur forræðishyggju, ekki bara í þessu máli heldur í svo mörgum málum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.3.2008 | 06:23
Til hamingju Ívar
Í dag 12. mars eru liðin 92 ár frá því að Alþýðuflokkurinn var stofnaður en hann var stofnaður 12. mars 1916. Á þessum degi fyrir 20 árum var einnig stofnað Íþróttafélag ívar. Sjálfur var ég virkur í Alþýðuflokknum í gamla daga og í dag sit ég í stjórn Íþróttafélagsins Ívars. Í tilefni þess læt ég hér fylgja með pistill um Íþróttafélagið Ívar sem sent var fjölmiðlum á Norðanverðum Vestfjörðum.
íþróttafélagið Ívar 20 ára
Íþróttafélagið Ívar var stofnað 12. mars 1988 og er því 20 ára í dag. Stofnfundur félagsins var haldinn á sal Grunnskóla Ísafjarðar 12. mars 1988. Á stofnfélagar voru 14 manns. Á fundinum var Gísli Hjartarson kosinn fyrsti formaður félagsins. Aðrir í stjórn voru kosnir Helga Ásgeirsdóttir, Ágústa Gunnarsdóttir, Bjarni Guðmundsson og Elín Þóra Magnúsdóttir.
Það var svo á aðalfundi félagsins 9. apríl, árið 1991 sem nafni félagsins var breytt í Íþróttafélagið Ívar. Það var gert í minningu um Ívar Bergmann, frá Ísafirði sem lést 1986.
Frá stofnun félagsins hafa aðeins fimm aðilar gengt formennsku í félaginu, það eru Gísli Hjartarson 1988-1990, Þóra Gunnarsdóttir 1990-91, Elín Gunnarsdóttir 1991-93, Anna Málfríður Jónsdóttir 1993-94. Frá árinu 1994 hefur Harpa Björnsdóttir verið formaðu og ekki hafa verið mikið um mannabreytingar í stjórn félagsins á þeim tíma.
Megin tilgangur og markmið Íþróttafélagsins Ívars er að efla útivist og íþróttaiðkun fatlaðra á Norðanverðum Vestfjörðum með æfingum, námskeiðum og keppnum. Einnig hefur Ívar gert fötluðu íþróttafólki á Norðanverðum Vestfjörðum kleift að taka þátt í mótum fatlaðra á landsvísi svo og erlendis.
Starfið hjá Íþróttafélaginu ívari hefur gengið vel og hefur verið hefðbundið undanfarin ár. Félagið hefur verið með æfingar í boccia frá stofnun félagsins og sundæfingar frá árinu 1998. Einnig hefur félagið reynt að bjóða upp á meiri fjölbreyttni í starfinu og eitt árið fékk stjórn félagsins borðtenniskappana Jóhann Rúnar Kristjánsson og Helga Þór Gunnarsson til að koma vetur og halda kynningu og námskeið í borðtennis. Áhugi var hjá nokkrum einstaklingum en þó náðist ekki að koma borðtennisæfingum í gang að neinu ráði og duttu þær upp fyrir eftir stuttan tíma.
Einnig var áhugi fyrir vetraríþróttum og eftir að fulltrúi frá Ívari hafði farið á námskeið sem Íþróttasamband fatlaðra hélt á Akureyri með leiðbeinendum frá Challenge Aspen árið 2000, fjárfesti íþróttafélagið Ívar í skíðasleða., fyrir fatlaða. Ívar fékk styrki frá félagasamtökum og velunnurum og var ráðist í þetta stórvirki. Ekki var félagið búið að vera lengi með sleðann, þegar vetur konungur fór að stríða okkur og hefur snjór verið að skornum skammti síðan eins og Vestfirðingar hafa tekið eftir. Það hefur gert félagsmönnum Ívars erfitt fyrir með að nota sleðann, þannig að undanfarin ár hefur félagið einbeitt sér að boccia og sundi.
Vegna fjarlægðar Ívars frá öðrum félögum innan Íþróttasambands fatlaðra hefur félagið nær eingöngu tekið þátt í Íslandsmótum ÍF í boccia og sundi en einnig hefur í góðri samvinnu við íþróttafélagið Höfrung á Þingeyri haldið á vorin svo kallað Halldórs Högna mót í boccia. Þar keppa félagsmenn Ívars við eldri borgara og aðra velunnara á Þingeyri og nágrenni. Þá er keppt um farandbikar sem var gefinn af Halldóri Högna
Einnig má geta þess að Ívar hefur átt keppendur á þrem síðustu Special Olympics heimsleikum, þau Önnu Elínu Hjálmarsdóttur, Héðinn Ólafsson og nú síðast Sveinbjörgu Sveinbjörnsdóttir. Hafa þau öll verið félaginu til sóma.
Síðasta stórmót sem Ívar sendi þátttakendur á var nú í febrúar síðast liðinn er Ívar sendi þrjár sundstúlkur, þær Elmu Guðmundsdóttir, Kristínu Þorsteinsdóttir og Ragneyju Líf Stefánsdóttir á Malmö-open.
Stærsta verkefni íþróttafélagsins Ívars frá stofnun er Íslandsmót fatlaðra í boccia í einstaklingskeppni sem haldið var í íþróttahúsinu Torfnesi, á Ísafirði október 2001. Félagið fékk fjölmargar bæjarbúa í lið með sér og tókst mótið frábærlega.
Íþróttafélagið Ívar hefur átt mikinn stuðning frá íbúum á Norðanverðum Vestfjörðum sem hafa tekið vel í þær fjáraflanir sem félagið hefur staðið fyrir. Helstu fjáraflanir félagsins er jólakortasala sem hefur verið fastur liður frá stofnun félagsins.
Einnig er og stærsta fjáröflun félagsins fyrirtækjamót Ívars í boccia sem haldið hefur verið ár hvert frá 2002. Fyrirtækin senda sjálf tveggja manna lið til að keppa. Mótið hefur stækkað með hverju árinu og er áhugi bæjarbúa ávallt mikill fyrir mótinu. En þar er leitast við að gera mótið sem skemmtilegast og hafa þátttakendur mætt á mótið í skemmtilegum búningum eða bara í starfsmannabúningum sinna fyrirtækja. Auk farand bikarins í boccia sem veittur er eru veitt ýmis önnur verðlaun, eins og bestu búningar, bestu liðsheild, bestu tilþrifin og besta stuðningsmannaliðið. Drengilegur keppnisandi ríkir ávallt á mótinu og lið hafa sóst eftir að landa bocciabikarnum. Þau lið sem unnið hafa mótið eru: Hraðfrystihús Gunnvarar 2002-03, Rörtækni 2004, Sýslumaðurinn á Ísafirði 2005, Rannsóknastofa Heilbrigðisstofnunarinnar Ísafjarðarbæ 2006. Á síðasta ári vann Við pollinn.
Af öðrum fjáröflunum sem standa undir rekstri Ívars má einnig nefna að skipverjar á Júlíusi Geirmundssyni gefa dósir sem falla til eftir hvern túr og að Ívar hefur staðið fyrir merkjasölu á kjörstöðum fyrir kosningar.
Stjórn Ívars er ávallt að huga að fjölbreyttni í starfi og var því ákveðið að halda Special Olympics mót í fótbolta og frjálsum íþróttum og það var haldið 31. ágúst - 2. september s.l..
Þátttaka var ágæt og félagsmenn Ívars tóku þátt í öllum greinum. Mótið tókst vel þrátt fyrir að veðurguðirnir voru mótsgestum ekki hliðhollir. Er nú aukinn áhugi meðal félagsmanna Ívars að halda áfram að stunda þessar íþróttagreinar.
Það er ljóst að möguleikarnir eru miklir fyrir Ívar og framtíðin er björt. Á þessum tímamótum Íþróttafélagsins Ívars, vill stjórn íþróttafélagsins Ívars nota tækifærið og þakka velunnurum félagsins stuðninginn síðast liðin 20 ár og vonum að framhald verði á því næstu 20 ár.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2008 | 00:52
Farðu út að ganga Ólína
Svo les maður bloggið hjá vinkonu minni henni Ólínu Þorvarðardóttur, þann 5. mars s.l. Þar sem hún skrifar um að hún hafi ekki getað farið með hundinn sinn í göngutúr vegna snjóflóðahættu. Morgunblaðið sá meira að segja ástæðu til að birta brot úr þessu bloggi Ólínu.
Þetta kemur mér algjörlega á óvart sjálfur bý ég á Ísafirði, tveimur götum fyrir ofan Ólínu, þ.e. á Urðarveginum efstu götunni á Ísafirði. Ekki er nokkur snjóflóðahætta í hlíðinni fyrir ofan Ísafjörð. Sjálfur hef ég gengið til vinnu á Eyrina undanfarna daga án vankvæða og/eða hættu á snjóflóði.
Það er ekki gott ef Ísfirðingar eru að mikla snjóflóðahættu hér á Vestfjörðum í augum þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Nóg eru nú ranghugmyndirnar um búsetu okkar á Vestfjörðum sem fólk þarna fyrir sunnan hefur. Frægt er að fyrir nokkrum árum þorðu foreldrar ekki að senda börnin sín á körfuboltamót vestur á Ísafjörð í mars það ár vegna snjóflóðahættu. Þá var snjólaust þann mánuðinn.
Það er rétt að það hefur verið snjóflóðahætta um vegina á milli þéttbýliskjarnana hér á Norðanverðum Vestfjörðum en ekki á Ísafirði.
Ólína, farðu bara út að ganga með hundinn á Ísafirði og dragðu djúpt andann og njóttu þess að vera á Ísafirði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.2.2008 | 19:54
Áfram Vilhjálmur
Það er gaman að fylgjast með Vilhjálmi hvernig hann hefur verið að fjalla um rekstur stórfyrirtækjanna í landinu og þá sérstaklega kjaramál þeirra. Vilhjálmur er greinilega sá sem lætur verkin tala og er með fæturna á jörðinni. Áfram Vilhjálmur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2008 | 01:47
Baldur seldur án auglýsinga, hvað veldur?
Frá því ég bloggaði síðast hef ég flutt mig ofar í hlíðina, er kominn upp á Urðarveg. Þurftum ekkert að gera áður en við fluttum annað en að mála nokkur herbergi og við reyndar flísalögðum vaskahúsið, án þess að flotta gólfið. Þrátt fyrir mikla gagnrýni á mínu vinnustað fyrir það að flota ekki.
Þrátt fyrir að vera fluttur þá er hellingur eftir en, þ.e bílskúrinn er en hálffullur af dóti sem á eftir að koma fyrir.
Á meðan á flutningunum hefur staðið hef ég, eins og allir landsmenn ekki komist hjá því að fylgjast með þessu málefnum borgarstjórnarflokks Sjálfsstæðisflokksins. Ég verð nú að segja það að ég vorkenni Vilhjálmi í þessu máli, það kemst ekkert annað að hjá fjölmiðlum.
Það nýjasta í kvöldfréttum á Stöð 2, um sölu á ferjunni Baldri til Sæferða án auglýsingar á tæpar 38 milljónir og svo var ferjan seld aftur tveimur vikum síðar á um 100 milljónir. Í fréttinni kom fram að fjármálaráðherra segði ríkið hafi grætt á þessu þar sem það hafi fengið 30% af söluhagnaðnum. Hvernig ætla fjölmiðlamenn að taka á þessu máli. Hver er ábyrgur? Einhverstaðar væru menn látnir víkja, vegna minni saka en svona viðskiptahátta.
20.1.2008 | 02:17
Drauma eign á Ísafirði til sölu
Nú er að líða að þorra og það birtir æ meira með hverjum deginum hér á Ísafirði. Fjölskyldan fékk afhent draumahúsið sitt að Urðarvegi 49 í vikunni. Unnið er við að mála húsið að innan milli þess sem mætt er í vinnuna. Það er alveg agalegt hvað vinnan slítur fyrir manni deginum.
Við eigum reyndar eftir að selja íbúðina okkar að Engjavegi 21. Það hefur verið frekar rólegt yfir fasteignamarkaðnum hér á Ísafirði í vetur. En ég hef trú á því að það glaðni til núna með hækkandi sól. Það er nú kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja losna úr umferðarteppunni fyrir sunnan og ofbjóða hátt fasteignaverð þar að koma vestur á Ísafjörð og fjárfesta í góðri íbúð við Engjaveg. Hér getur þú lesandi góður kynnt þér betur íbúðina, sjón er sögu ríkari http://www.fsv.is/skoda_eign_print.asp?eign_id=495.
Við fjölskyldan eigum eftir að sakna Engjavegarins, þetta er friðsæl og verðlaunuð gata á Ísafirði. Þar er mikið útsýni og stutt í miðbæ Ísafjarðar. Engjavegur 21, er 4 5 herbergja íbúð með aukaherbergi í kjallara, sem gott er að hafa er gesti ber að garði úr Reykjavík.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 04:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.12.2007 | 22:51
Svona gera menn ekki
Það er sorglegt að fylgjast með að þingmenn Samfylkingarinnar skulu ekki rísa upp gegn skipan Þorsteins Davíðssonar sem héraðsdómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Það er eingöngu einn þingmaður Samfylkingarinnar Lúðvík Bergvinsson sem hefur mótmælt ráðningunni. Við jafnaðarmenn horfðum upp á ráðherra Sjálfstæðisflokks skipa hæstaréttardómara úr sínum röðum í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Þá vantaði ekki gagnrýni jafnaðarmanna.
Hvar eru þær raddir nú. Ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með þingmenn Samfylkingarinnar í þessu máli. Samfylkingin verður að láta betur heyra í sér við svona vinnubrögð.
Ég segi nú bara eins og Davíð Oddsson sagði er fyrrverandi fjármálaráðherra ætlaði að skattleggja blaðburðarbörnin hérna um árið. ,,Svona gera menn ekki".