13.3.2007 | 08:42
Ekkert í pípum ríkisstjórnarinnar.
Kristján Már endaði þessa umræðu með að spyrja: ,,Eru þið með eitthvað í pípunum? Átti auðvitað við hvort ríkisstjórnin væri með einhverjar lausnir á málefnum Vestfjarða. Svarið sem Geir kom með var ,, Það er of snemmt að svara því núna. HALLÓ, of snemmt búnir að vera við völd í 12 ár. Hvað þarf ríkisstjórnin mörg ár til viðbótar. Ef þetta er ekki nóg til þess að Vestfirðingar gefi þessari ríkisstjórn frí, þá er þeim sömu Vestfirðingum ekki viðbjargandi.
12.3.2007 | 18:23
Kratar til hamingju
Til hamingju með daginn kratar í öllum flokkum. Í dag eru 91 ár frá því að Alþýðflokkurinn var stofnaður, en hann var stofnaður 12. mars 1916. Alþýðuflokkurinn varð hluti af Samfylkingunni við stofnun hennar. Alþýðuflokkurinn á glæsta sögu eins og að koma á almannatryggingkerfinu, aðild Íslands að EFTA og koma á EES samningnum.En einhverra hluta vegna hefur aldrei mátt bera of mikið á merki jafnaðarmanna í Samfylkingunni. Nú blæs ekki byrlega fyrir fylkingunni, kominn niður fyrir 20% í hverri skoðannakönnuninni á fætur annari. Kratar stöldurm við á degi sem þessum og heitum því að gefa ríkisstjórn ójafnaðar sem nú er við völd frí þann 12. maí n.k.
7.3.2007 | 18:45
.....ég þekki hann!
1.3.2007 | 08:21
Hjálpum blindum í vor
Þrír sölumenn hringdu í gærkvöldi. Tveir fyrstu voru að selja bækur fyrir bókaforlag. Sá þriðji var ung stúlka sem sagðist vera að hringja fyrir Ungblind. Sagði að það væri samtök ungs sjónskerts og blinds fólks. Að samtökinni stæðu m.a. fyrir því að kaupa tæki sem Tryggingastofnun ríkissins styrkir ekki kaup á. Hún bauð mér geisladisk með tónleikum Ríó tríósins í Salnum í Kópavogi fyrir skemmstu. Ég sagði henni eins og satt er að ég kaupi ekki svonalagað í gegnum síma. Ég sagði henni ennfremur að ég ætlaði að styrkja samtökin með því að kjósa Samfylkinguna í vor og fella með því ríkisstjórnina. Svo að hennar fólk þyrfti ekki að fara út með betlistafinn til að eignast þau hjálpartæki sem þau þurfa til að getað lifað sómasamlegu lífi.
Mér finnst að skattar okkar eiga að fara í það að styrkja okkar minnstu bræður og systur sem þurfa á stuðningi að halda vegna örorku og slysa. Unga stúlkan var á því að fella með mér ríkisstjórnina og sagðist ætla að kjósa með því Vinstri græna. Með það kvöddumst við.
Í Íslandi í dag og Kastlósinu stuttu áður hlustaði ég á hve blind börn á Íslandi lifa við slæman kost. Það er skömm að því hvað ein ríkasta þjóð í heimi sýnir fötluðum og ekki síst blindum börnum lítinn skilning. Að foreldrar blindra barna á Íslandi þurfi að flýja land til að geta skapað börnum sínum viðunandi skilyrði til náms, er svartur blettur á velferðarkerfinu okkar.
Einnig heyrði ég í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni að ríkisstjórnin ætlar ekki að lækka skatta á bleyjum en þeir lækka skatta klámritum. Ég trúi nú ekki öðru en þjóðinn láti verða að því og gefi ríkisstjórnarflokkunum frí núna í vor.
28.2.2007 | 07:43
Ítroðið í Bolungarvík
26.2.2007 | 00:16
Pólitísk umferðarslys og litskiptingar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2007 | 23:34
Förum að skora mörk jafnaðarmenn
Jæja Silfur Egils um helgina sveik ekki að vanda. Þar byrjaði þátturinn með góðum pistli um ástand stjórnarandstöðuflokkanna þegar rétt rúmir þrír mánuðir eru til kosninga. Þar talaði Egill um slæmt gengi vinstri flokkanna. Þar bar hæst slakt gengi Samfylkingarinnar, komið undir tuttugu prósent í skoðanakönnunum. Í lok þáttarins kom svo gamli foringinn Jón Baldvin og lýsti yfir áhyggjum sínum og talaði um vitlausar áherslur.
Það sem við jafnaðarmenn þurfum að gera í stað þess að gæla við að fara að kljúfa jafnaðarmenn það er að læra af mönnum eins og landsliði okkar í handbolta. Við þurfum að taka kosningarnar eins og ,,strákarnir okkar tóku frakkana eftir tapið við Úkraínu. Þ.e. að hætta að líta á stigatöflun og stilla okkur saman og fara að skora nógu mikið af mörkum. Hafa forystu í stjórnmálum og láta hina svar okkar hugmyndum en ekki vera að sífeldum vandræða gangi. Samfylkingin þarf að kalla inn þjálfara á hliðarlínuna með mikla reynslu eins og . Jón Baldvin. Þjálfara með hugmyndir, tækni og getu til að tala kraft í liðið.
Ef jafnaðarmönnum tekst eins vel upp og ,,stráknum okkar gekk á móti frökkunum á HM verður glæsilegur sigur jafnaðarmanna í vor.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.1.2007 | 00:03
Góð Kryddsíld
Kryddsíldin var óvenju góð núna um áramótin en þessi vinsæli þáttur hefur verið frekar bragðdaufur undanfarin áramót. Formenn flokkanna tóku sig ekki of alvarlega núna um áramótin en fóru samt út í skemmtilega pólitíska umræðu enda er Egill snillingur í því að fá viðmælendur til að tala um pólitík.
Það var agalegt fyrir okkur jafnaðarmenn að hlusta á það þegar Ingibjörg Sólrún og Steingrímur J fóru að kíta um hver ætti að verða forsætiráðherra ef ,,kaffibandalagið nær meirihluta eftir kosningarnar í vor. En það vantar meiri alvöru í þetta bandalag, mér finnst frambjóðendur Samfylkingarinnar vera að draga allt of mikið lappirnar í þeirri umræðu. Ég er sammála því sem Steingrímur J. sagði í þættinum og hefur sagt oft áður að flokkarnir í minnihlutanum á Alþingi eiga að ganga hreint til verks og fara norsku leiðina. Bjóða upp á raunhæfan valkost.
Brandari þáttarins var þegar Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins neitaði því að það að kjósa Framsókn eða Sjálfstæðisflokkinn væri að kjósa tveir fyrir einn. Jón hélt því fram að málefnin skyldu ráða. Fólkið í landinu sá nú hvernig gamli góði Villi og Björn Ingi féllust í faðma og tilkynntu samstarf í Reykjavík strax eftir kosningar og fóru svo að vinna að málefna samningi eftir blaðamannafundinn.
Einnig var ég ósáttur við vestfirðinginn Guðjón Arnar að hann skyldi ekki hafa svarað því betru er Sigmundur Ernir skaut á hann eitthvað á þá leið hvort að bandaríkjamönnum hafi ekki vegnað vel með alla sína innflytjendur er hann gagnrýndi innflytjenda umræðuna hjá Frjálslyndaflokknum. Ég held að Frjálslyndiflokkurinn vilji nú ekki að Ísland verði eitthvað ,,súpuþjóðfélag eins og Bandaríkin hafa stundum verið kölluð undanfarin misseri.
Þessi gagnrýni á Frjálslyndaflokkinn í haust að hann sé með einhverja fordóma á sinni stefnuskrá er öfugsnúningur. Frjálslyndir hafa einungis verið að boða umræðu um innflytjendamál sem hefur sárlega vantað. Enda er mikið rætt um þann mikla fjölgun útlendinga á Íslandi á síðasta ári. Innflytjendamál eru alstaðar rædd á vinnustöðum, í pottunum og allstaðar sem fólk kemur saman.Eflaust fór Magnús Þór Hafsteinsson eitthvað yfir strykið í hita umræðunnar í haust í Silfri Egils. En mönnum getur orðið á. Í þeim þætti voru einu viðbrögð viðmælenda hans í þættinum þeirra Steinunnar Valdísar og Þórhildar Þorleifsdóttur að tala um rasisma hjá Magnúsi sem ekki var rétt, nema að litlu leiti í hita leiksins. Enda uppskáru þær eftir því í prófkjöri Samfylkingarinnar helgina á eftir. Þær hefðu í stað þess átt að fagna þessari umræðu um innflytjendamál.
Takk í bili, meira síðar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.1.2007 | 22:53
Gleðilegt blogg ár
Góðan daginn og gleðilegt ár hér með er upphafið af bloggsíðu minni. Hérna hef ég hugsað mér að geta fjallað um mína heimabyggð Ísafjarðarbæ í blíðu og stríðu. Einnig langar mig að fjalla hér um ýmislegt sem ég heyri og les um málefni líðandi stundar og bara það sem mér dettur í hug. Oft hefur manni langað að skrifa greinar í blöð til að lýsa skoðunum sínum á hinum ýmsu málefnum en ávallt hætt við þar sem manni finnst það vera svo mikið stórmál. Það er helst að ég hafi skrifað minningagreinar því þær þarf alltaf að skila undir tímapressu. En greinar um hin ýmsu málefni eru yfirleitt ekki undir neinni pressu og verða því sjaldnast að veruleika.En svo komst ég að því með sjálfum mér núna fyrir jólin að réttast væri að fara að blogga eins og allir hinir.
Enda er að fara í hönd skemmtilegur tími sem eru kosningar til alþingis og heilmikið að gerast á Íslasndi og í heiminum.
Hjá sjálfum mér er það nú að gerast að ég var að skipta um vinnustað eða með sameingu lögregluembætta á Íslandi sem tók gildi nú um áramótin. Þar með er ég ekki lengur lögreglumaður hjá lögreglunni í Bolungarvík, heldur hjá sameinuðu embætti sem heitir nú Lögregalan á Vestfjörðum. Það er sameining lögregluembættana í Bolungarvík, Ísafjarðar, Hólmavíkur og Patreksfjarðar. Þetta gengur nú allt saman þokkalega það á eftir að stilla saman strengina þetta verður allt farið að rúlla þegar líða tekur á árið.
En meira síðar takk í bili
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2007 | 22:14
Fyrsta bloggfærsla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)