Halló, hvar er ég á kortinu !

Ég hlustaði á fréttir Stöðvar 2 s.l. föstudagskvöld og þar var fréttamaður að fjalla um, hve mikill straumur ferðamanna væri út úr höfuðborginni þessa helgi.

Fréttamaður hafði viðtöl við fólk sem var á leið út úr bænum og þar kom í ljós að ferðinni var heitið víða um land.

Eftir viðtölin við ferðamennina þótti fréttamanni ástæða til að telja upp hvað væri um að vera um helgina um landið.  Fréttamaður taldi upp m.a. Írska daga á Akranesi, Pollamót á Akureyri , Humarhátíð á Höfn o.fl.

Ekkert var minnst á Vestfirði. En núna um helgina voru haldnar þrjár hátíðir á Vestfjörðum. En það voru Dýrafjarðardagar á Þingeyri, Markaðsdagar í Bolungarvík og Hamingjudagar á  Hólmavík.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Vestfirðir gleymast hjá fjölmiðlum þegar minnst er á uppákomur um landið.

Það er eins og við Vestfirðingar séum ekki á Íslandskortinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband